23október

23.10.08

Pff, klukk eda hvad thad heitir nu. Eina astædan fyrir thvi ad eg svara thessu er vegna thess ad Svansa helt thvi fram ad eg myndi fyrst blogga i desember aftur!! Proofed her wrong



4 störf.

Flugfelag Islands
Dogma
Topshop Kbh
Magasin


4 bíómyndir

Terkel i knibe
Zoolander
Leon
P.S. I love you


4 staðir sem ég hef búið á

Akureyri
Portugal
Holland
Danmørk

4 sjónvarpsþættir

Gossip Girl
Despo
Family guy
Rejseholdet


4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum

London
Italia
Spánn
Germany

4 netsíður

www.facebook.com
www.erlamalen.bloggar.is
www.gmail.com
www.videostic.com

 

fernt matarkyns

Jólamaturinn
Humarsupa ad hætti Hildar
Kjúklingur
Kebab med FUllt af chilli


4 óskastaðir

Heima á Íslandi med ykkur øllum
Spókandi mig i New York med Dúllu minni
Í Glasgow ad drekka ódýrt hvítvín med Sv
Í Køben med øllum stelpunum mínum


4 sem ég klukka

Dody
Arndis
Begga S
Steinunn

Ekki thad ad eg buist vid thvi ad thad gerist ;o)
23. október 2008 klukkan 16:04
Erla Malen Óskarsdóttir
7 athugasemdir
19október

19.okt

Jahá, orðið svo langt síðan ég bloggaði að það er búið að breyta umsjónarkerfinu!!

En allavega Þá er allt gott að frétta, búið að vera brjálað að gera þannig að ég hef hreinlega ekki haft orku (lesist ekki nennt) að blogga..

Það er ekki talað um annað en kreppuna þessa dagana og að Ísland sé að fara "bankerot", ég hef tekið þá ákvörðun að tala EKKERT um það, við getum rætt þetta þegar það er komin lausn á málunum.

Vikan hefur verið frekar busy, super bazar í Magasin þannig að það hefur verið nóg að gera. Var samt í fríi um helgina og fórum við skötuhjú í 80-90 party hjá Þórdísi, allir í búningum og rosa stuð. Hægt verður að sjá myndir seinna í dag á facebook Laughing En það eru engin lát á partystandi hérna því að í næstu viku er Halloween party hjá Claudine fyrir okkur stelpurnar í vinnunni. Er komin með búning og verð ég klædd eins og pirats of the carabian dama, hadiði að ég verði flott eða???

Ég er annars búin að taka ákvörðun um að eyða jólunum hérna í Dk. Ég hreinlega nenni ekki heim fyrir 4 daga og get ómögulega fengið frí úr vinnu. En við Mads erum búin að ákveða að koma til Ak um páskana í staðinn og skella okkur á skíði.. Ég veit nú ekki alveg hvernig mér lýst á það að vera hérna um jólin en eins og ég segi við sjálfa mig þá verð ég nú að verða fullorðin einhverntímann, ekki satt??

Jæja, nenni þessu alveg ómögulega, en allavega búin að láta vita af mér Smile
Har det godt



19. október 2008 klukkan 14:04
Erla Malen Óskarsdóttir
2 athugasemdir
12ágúst

12.ágúst

Jæja, það hlaut að koma að því að ég "nennti" að blogga..

En allavega erum við (löngu) komin heim eftir yndislegt sumarfrí á Íslandi, þar sem var djammað í Reykjavík, farið á Jökulsárlón og Skaftafell. Keyrt í gegnum hálendið með næturstoppi í Landmannalaugum, farið í jarðböðin í Mývatnssveit, tippasafnið á Húsavík skoðað og farið í rafting. (það stóð uppúr hjá dananum)
Svo fórum við í brúðkaup hjá Strúllu frænku og Bjarka og ég fór í brúðkaup til Drafnar og Mána, enn og aftur innilega til hamingjuBrosandi Fyrir utan það voru vinir og vandamenn heimsóttir og segji ég bara takk til ykkar allra fyrir frábæran tíma..

En svo ég snúi mér að öðru. Ég skellti mér í aðgerð á fimmtudaginn til að láta fjarlægja 2 sinahnúta á ristinni á mér (sem reyndust svo vera heill klasi, puha) þannig að ég er búin að liggja heima og vorkenna sjálfri mér síðan fyrir helgi. En maður myndi nú halda að sambýlingurinn hefði þá dekrað við mann, en nei. Hann var blindfullur á festivali alla helgina og ég sat alein heima og gat mig hvergi hreyftGráta En þetta er allt saman að koma og ég get orðið skakklappast um íbúðina.


Svo var nú planið að skella sér til hennar Dúllu í sept en sökum fjárhags ákvað ég að láta það bíða til betri tíma, en gat náttla ekki bara verið heima hjá mer þannig að ég fann mjög svo ódýra helgarferð til Glasgow og verð ég þar 18-23 sept. Jiii hvað ég hlakka til!!!


Anyways, við tókum fullt af myndum á klakanum en þær eru allar í tölvunni hans Mads og hún er eins og er ekki tengd við netið. En því verður nú reddað innan skamms og þá skelli ég inn fullt af myndum.


Jæja, komið nóg í bili.

Skakklappa

Hej igen. Búin að skella inn fullt af myndum. Er undir "myndirnar mínar" hérna hægra megin á síðunni

12. ágúst 2008 klukkan 10:16
Erla Malen Óskarsdóttir
29 athugasemdir
10júlí

10.júlí

Já, í dag er 10. júlí og við erum að koma á MORGUN!!! Jii get ekki beðið. Allt að verða klárt og bara smá vinna í fyrramálið og svo verður lestin tekin til Kastrup seinnipartinn.
Ég verð með gamla nr mitt á Íslandi, held að nr sé 849 6876, endilega leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál.
Ég vona allavega að ég sé með rétta kortið, ef ekki þá verð ég með danska nr mitt þangað til.
Vona að ég heyri í ykkur flestum á suðvestur horninu á laug, það er nefnilega djamm lørdag aften!!!


Vi ses snart Hlæjandi

10. júlí 2008 klukkan 15:40
Erla Malen Óskarsdóttir
5 athugasemdir
01júlí

1. júli

Fyrsti júlí í dag, rosalegt hvað tíminn líður. Mamma á afmæli eftir 3 daga, Roskilde festival byrjar á fimmtudaginn og síðast en ekki síst þá erum við að koma eftir 10 daga!!!!
Í tilefni þess að við séum að koma keypti ég nýja myndavél. Búin að vera myndavélalaus síðan ég missti hana á götuna fyrir utan Kaffi AK á annan í jólum. Ofboðslega er ég glöð núna, þarf bara að fara að smella af í gríð og erg nú og setja eitthvað inná síðuna Hlæjandi

Annars bara gott hljóð í okkur skötuhjúum, pa og ma voru hérna í lok júní og gengum við meðal annars uppá Himmelbjerget, tókum með okkur epli og læti en skellihlóum þegar á toppinn var komið!! Við ákváðum svo að taka tímann á niðurleið. Við vorum sem sagt 2 og hálfa mínútu, pabbi hafði orð á því að þetta hefði verið hans besta fjallganga, stutt og þægilegUllandi

Mads fór svo í munnlegt próf þegar gömlu voru hérna hjá okkur. Hann hafði í nokkrar vikur setið sveittur yfir verkefni sem hann átti að skila fyrir prófið og svo átti hann að fara að verja verkefnið sem og draga spurningar og svara og sýna þannig prófdómurnum hvað hann hefði fylgst vel með í vetur. Hann mætti svo hingað heim kófsveittur og eldrauður í framan og með tvær 10-ur, eina fyrir verkefnið og aðra fyrir munnlega prófið, frábær árangurÞögull sem gröfin 

En hér á bæ er bara verið að telja niður dagana, er hreinlega að hugsa um að byrja að pakka fljótlega, svo mikill er spenningurinn..

Hlakka til að sjá ykkur öll sömul


01. júlí 2008 klukkan 17:32
Erla Malen Óskarsdóttir
7 athugasemdir
09júní

9. Júní

Hæhó allir saman.
Hér í Danmörku er búið að vera yndislegt að vera, 25 til 30 gráður í 2 vikur. Ég er búin að nota allann minn frítíma útí garði eða á ströndinni og Mads að gera verkefni þannig að það hefur ekki verið gert handtak á heimilinu, alveg kominn tími og stórhreingerninguHlæjandi

Mamma og pabbi eru væntanleg eftir 9 daga (jamm er að telja niður) og ætla að eyða 5 dögum með okkur. Planið er að fara til Skagen og á Fyn á eitthvað slot og bílasafn og svo býst ég nú passlega við því að ég og mamma kíkjum aðeins í búðir. Magasin byrjar einmitt með sumarútsöluna 2 dögum eftir að þau koma og þar sem ég er komin með listana, þá er ég að sjálfsögðu farin að plokka það besta og taka frá fyrir mig, muhaha...

Svo erum við Mads væntanleg til Íslands þann 11. júlí. Þetta verður langt og gott frí í þetta skiptið, ætlum ekki aftur heim fyrr en þann 30. júlí. 11 er föstudagur og ætlum við að eyða helginni í Reykjavík þannig að þeir sem vilja koma út á lífið á laugardeginum rétt upp hendi Glottandi

Á mánudeginum koma mamma og pabbi svo suður og verður haldið í hálandaferð og verðum við ekki komin til Akureyrar fyrr en á fimmtudegi eða föstudegi. En þá verðum við allavega búin að túristast og getum farið að hitta ykkur öll sömul og "hygge" okkur..

Jæja, ætla að skella mér aðeins út og ná síðustu sólargeislunum áður en það fer að rigna. og ég vil fá betri undirtektir í þetta skiptið og fleiri komment!!!

Ást til ykkar
09. júní 2008 klukkan 15:07
Erla Malen Óskarsdóttir
12 athugasemdir
28maí

28. maí

3 apríl síðastliðinn pantaði ég mér íslenskt heimasímanr. Eftir næstum því 2 mánaðar bras og leiðindi (Hive er ekki alveg að standa sig) þá er allt saman klárt.
Þið getið sem sagt hringt í mig í síma 496 2080 og borgið þar að leiðandi bara eins og þið séuð að hringja í íslenskan heimasíma og ég hringi FRÍTT í ykkur Hlæjandi 
Held ég eigi eftir að eiga í ástarsambandi við nýja símann minn næstu daga og þið megið pottþétt eiga von á símtali.
Hlakka til að heyra í ykkur elskurnar mínar
P.s Það er spáð 30 gráðum fram yfir helgi og ég er í helgarfríi, NICE
Later..

28. maí 2008 klukkan 15:56
Erla Malen Óskarsdóttir
5 athugasemdir
18maí

18. maí


Rakst á þetta og hreinlega grét úr hlátri. Kem með fréttir á næstu dögum.



18. maí 2008 klukkan 19:52
Erla Malen Óskarsdóttir
4 athugasemdir
06maí

6 maí

Já byrjun maí og dagurinn búinn að vera yndislegur!! Var í fríi í dag og þar sem það er búið að vera 20 gráður þá ákvað ég að eyða deginum í leti í garðinum hérna við hliðina. Lagði af stað með teppi, góða bók og nýja diskinn með Vilhjálmi Vilhjálmsyni sem ég fékk sent í sumargjöf frá gömlu. Lá og "hyggede" þangað til Mads kom úr vinnunni og kom heim með þónokkurn lit (örlítið rauðan samt)Brosandi
En svona á vikan að vera, 20 gráður og svo 24 á laugardag, ekki slæmt að vera í Danmörku þessa dagana!!

Ma og pa eru búin að bóka ferð hingað til okkar í sumar, eru væntanleg 18 júní og verða til 24, er farin að dauðhlakka til og LÖNGU byrjuð að skipuleggja allt það skemmtilega sem við ætlum að geraGlottandi

Annars var ég búin að ákveða að fara til Portugals í sumar, en sökum mikillar heimþráar þá náði ég að lokka Mads með til Íslands í staðinn!! Erum væntanleg í júlí (dagsetningar ekki alveg komnar á hreint) og ætlum að vera í 2 vikur. Er stefnan tekin á hálendið með gömlu og svo er ég eiginlega búin að lofa river rafting, vill einhver með??
En ég er alveg að deyja úr spenningi, það verður svo yndislegt að komast aðeins heim og knúsa ykkur klakabúaKoss

Jæja, Private practice er að byrja.
P.s takk fyrir öll kommentin í seinasta bloggi, reikna með enn fleirum í þetta skiptið!!
Knus á ykkur
06. maí 2008 klukkan 17:48
Erla Malen Óskarsdóttir
15 athugasemdir
21apríl

HĆHÓ

Sæl veriði.
Ofboðslega er ég svekkt yfir því að ég hafi hent myndavélinni minni í götuna sem gerir það að verkum að hún virkar ekki!!
Veðrið í DK er nefnilega alveg YNDISLEGT. Sól og blíða og milli 10 og 15 gráður hér í Århus seinustu 4 dagana.
Vorum hjá tengdó á laugardaginn og nýttum við góða veðrið út í garði, berfætt og á stuttermabol í fótbolta eftir að Mads var búinn að slá grasiðHlæjandi
Annars er ég ennþá í helgarfríi. Á föstudaginn var Store bededag þannig að allt var lokað og allir í fríi þannig að ég er búin að eiga 4 daga helgi. Við fórum 4 stelpur úr vinnunni út að borða á fimmtudaginn eftir vinnu sem endaði með svaka djammi langt fram á nótt, ekkert smá gaman hjá okkur.

Fékk símtal í seinustu viku, Alfa hringdi og tilkynnti mér að hún Lilja Dögun væri LOKSINS komin í heiminn, TIL HAMINGJU MEÐ SNÚLLUNA. Hún er ekkert smá æðisleg og með næstum því jafn mikið hár og égUllandi

Mads var að byrja í nýrri vinnu í dag, hann var orðinn hundleiður á gömlu vinnunni og hlakkaði mikið til hérna í morgun og var kominn á fætur fyrir allar aldir, hlakka svo bara til að heyra frá fyrsta deginum þegar hann kemur heim!!

Annar var ég "godkendt" í seinustu viku fyrir "talentprogrammet" ég byrja í lok mai og hlakka mikið til, þetta hljómaði allt saman rosalega spennandi og örugglega mjög skemmtilegt en samt sem áður krefjandi. Vona bara að ég komi til með að leysa þetta "verkefni" vel!!

Jæja komið gott í bili, langar svo að biðja ykkur um að kvitta fyrir innlitið, því fleiri komment sem ég fæ, því meiri löngun hef ég til að bloggaBrosandi

Knus og kram fra Malen som bare elsker det dejlige forår!!
21. apríl 2008 klukkan 11:48
Erla Malen Óskarsdóttir
12 athugasemdir

Ađalvalmynd

Könnun

Hvar ertu stödd/staddur?

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...