HĆHÓ
Sæl veriði.Ofboðslega er ég svekkt yfir því að ég hafi hent myndavélinni minni í götuna sem gerir það að verkum að hún virkar ekki!!
Veðrið í DK er nefnilega alveg YNDISLEGT. Sól og blíða og milli 10 og 15 gráður hér í Århus seinustu 4 dagana.
Vorum hjá tengdó á laugardaginn og nýttum við góða veðrið út í garði, berfætt og á stuttermabol í fótbolta eftir að Mads var búinn að slá grasið
Annars er ég ennþá í helgarfríi. Á föstudaginn var Store bededag þannig að allt var lokað og allir í fríi þannig að ég er búin að eiga 4 daga helgi. Við fórum 4 stelpur úr vinnunni út að borða á fimmtudaginn eftir vinnu sem endaði með svaka djammi langt fram á nótt, ekkert smá gaman hjá okkur.
Fékk símtal í seinustu viku, Alfa hringdi og tilkynnti mér að hún Lilja Dögun væri LOKSINS komin í heiminn, TIL HAMINGJU MEÐ SNÚLLUNA. Hún er ekkert smá æðisleg og með næstum því jafn mikið hár og ég
Mads var að byrja í nýrri vinnu í dag, hann var orðinn hundleiður á gömlu vinnunni og hlakkaði mikið til hérna í morgun og var kominn á fætur fyrir allar aldir, hlakka svo bara til að heyra frá fyrsta deginum þegar hann kemur heim!!
Annar var ég "godkendt" í seinustu viku fyrir "talentprogrammet" ég byrja í lok mai og hlakka mikið til, þetta hljómaði allt saman rosalega spennandi og örugglega mjög skemmtilegt en samt sem áður krefjandi. Vona bara að ég komi til með að leysa þetta "verkefni" vel!!
Jæja komið gott í bili, langar svo að biðja ykkur um að kvitta fyrir innlitið, því fleiri komment sem ég fæ, því meiri löngun hef ég til að blogga
Knus og kram fra Malen som bare elsker det dejlige forår!!
21. apríl 2008 klukkan 11:48
Erla Malen Óskarsdóttir
Erla Malen Óskarsdóttir

veðrið er snilld rétt er það