12.ágúst
Jæja, það hlaut að koma að því að ég "nennti" að blogga..
En allavega erum við (löngu) komin heim eftir yndislegt sumarfrí á Íslandi, þar sem var djammað í Reykjavík, farið á Jökulsárlón og Skaftafell. Keyrt í gegnum hálendið með næturstoppi í Landmannalaugum, farið í jarðböðin í Mývatnssveit, tippasafnið á Húsavík skoðað og farið í rafting. (það stóð uppúr hjá dananum)
Svo fórum við í brúðkaup hjá Strúllu frænku og Bjarka og ég fór í brúðkaup til Drafnar og Mána, enn og aftur innilega til hamingju
Fyrir utan það voru vinir og vandamenn heimsóttir og segji ég bara takk til ykkar allra fyrir frábæran tíma..
En svo ég snúi mér að öðru. Ég skellti mér í aðgerð á fimmtudaginn til að láta fjarlægja 2 sinahnúta á ristinni á mér (sem reyndust svo vera heill klasi, puha) þannig að ég er búin að liggja heima og vorkenna sjálfri mér síðan fyrir helgi. En maður myndi nú halda að sambýlingurinn hefði þá dekrað við mann, en nei. Hann var blindfullur á festivali alla helgina og ég sat alein heima og gat mig hvergi hreyft
En þetta er allt saman að koma og ég get orðið skakklappast um íbúðina.
Svo var nú planið að skella sér til hennar Dúllu í sept en sökum fjárhags ákvað ég að láta það bíða til betri tíma, en gat náttla ekki bara verið heima hjá mer þannig að ég fann mjög svo ódýra helgarferð til Glasgow og verð ég þar 18-23 sept. Jiii hvað ég hlakka til!!!
Anyways, við tókum fullt af myndum á klakanum en þær eru allar í tölvunni hans Mads og hún er eins og er ekki tengd við netið. En því verður nú reddað innan skamms og þá skelli ég inn fullt af myndum.
Jæja, komið nóg í bili.
Skakklappa
Hej igen. Búin að skella inn fullt af myndum. Er undir "myndirnar mínar" hérna hægra megin á síðunni
Erla Malen Óskarsdóttir

þakka bara líka kærlega fyrir allan hittinginn í sumarfríinu ykkar hér heima! :D ómetanlegt!
vona að þér sé farið að líða mikið betur! :)
lov lov!